Kæra Haukafólk

Vinsamlega lesið vel eftirfarandi texta:

Eins og flestum er eflaust kunnugt um mun íþróttastarf barna á leik- og
grunnskólaaldri hefjast af krafti þann 4. maí. Íþróttastarf fullorðinna
hefst einnig þann dag en með takmörkunum. Við hlökkum til að taka á móti
iðkendum okkar á nýjan leik. Æfingatafla flokksins smá breyting

 miðvikudag kl 17.00 fimmtudag kl 16.00 og laugardag kl 12.30.

 Ný æfingatafla tekur svo gildi eftir
skólaslit grunnskóla og verður hún auglýst fljótlega. Sumarstarfið á
Ásvöllum verður líka auglýst á næstu dögum en það verður með svipuðu
sniði og undanfarin sumur. Við viljum vekja athygli á því að enn miðast
samkomubann við 50 einstaklinga og ávallt skal virða reglu um tvo metra
milli fullorðinna. Við beinum því þeim tilmælum til foreldra og
forráðamanna barna á grunnskólaaldri að mæta EKKI með börnum sínum á
æfingar nema nauðsyn beri til. Telji einhver þörf á því að fylgja barni
sínu skal tilkynna það til viðkomandi þjálfara. Við höldum áfram að
vanda okkur og fara varlega.

Áfram Haukar!


Nýta sér youtube fyrir æfingar

Sælir drengir.

Fyrir þá sem vilja fá æfingar til að gera heima er best að fara á youtube og stimpla inn ksi æfingar þá koma upp möguleikar á æfingum til að gera heima inni eða úti(t.d. tækniskóli KSÍ).

kv Freyr og Viktor


Kæra Haukafólk

 

Samkvæmt tilmælum frá ÍSÍ verður gert hlé á æfingum grunn- og leikskólabarna til mánudagsins 23.mars. Haukar munu fylgja þessum tilmælum sem byggja á mati landlæknis, sóttvarnalæknis og almannavarna ríkislögreglustjóra. Þjálfarar og starfsfólk félagsins munu vinna að því að skipuleggja næstu viku með þeim hætti að æfingar geti hafist aftur að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru um samkomubann. Hlutirnir eru þó fljótir að breytast, við munum fylgjast vel með og upplýsa iðkendur og forráðamenn um stöðuna hverju sinni. Hér er tilkynningin frá ÍSÍ: http://isi.is/frettir/frett/2020/03/15/Ithrottastarfid-i-samkomubanni/


Æfingar falla niður

Allar æfingar á vegum Knattspyrnufélagsins Hauka verða felldar niður um helgina.
Með vísan til stöðunnar í samfélaginu og yfirlýsinga frá yfirvöldum vegna ráðstafana gegn Kórónuveirunni hefur verið ákveðið að fella niður allar æfingar hjá félaginu nú um helgina.
Frekari upplýsingar um íþróttastarf á vegum Hauka verður kynnt eftir samráðsfund á mánudaginn.

F.h. Knattspyrnufélagsins Hauka
Samúel Guðmundsson, formaður.
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri.


Vogaferð laugardaginn 8. febrúar

Skráning hér fyrir neðan fyrir þá sem komast/ætla að fara.

Mæting í íþróttahúsið í Vogunum (Vatnsleysuströnd) er kl. 14.00.

Strákarnir þurfa að hafa með sér svefnpoka og dínu ef þeir vilja,

(Það er sofið á júdódínum) sundskýlu, íþróttaskó,handklæði og íþróttaföt(ekkert farið út nóg að vera með stuttbuxur og bol.)

Þeir sem vilja ekki sofa geta verið sóttir fyrir nóttina.

 
Foreldrar þurfa að keyra strákana í Vogana og sækja.

Vantar 2-3 foreldra til að hjálpa til og gista með strákunum hafa samband sem fyrst við þjálfara 897-8384 Freyr

 

Dagskrá:  

12.00    Borða vel heima hjá sér.

14.00         Mæting

14.10         Badminton,félagsmiðstöð

15.00         Badminton,félagsmiðstöð

16.00         Drekkutími

16.15         Körfubolti, vítakeppni og fl. 

 17.00         Handbolti (vítakeppni og hraðaupphlaup)

17:45          Hástökk

18.15           Hraðabraut á tíma

18.45         Matur

19.30         Frjálst í sal

20.00         Fótbolti í sal

 21.30        Kvöldkaffi+Bingó

22.45        Hátta-tími

 

Sunnudagur.

08:30  Morgunmatur

 Fótbolti + Sund

Sækja stráka kl 11.30.

Kostnaður: 5500 kr og greiðist í Vogunum

Allur matur og drykkir eru inn í verðinu ekki koma með nesti.

Nánari upplýsingar hjá Frey þjálfara gsm: 897-8384

Staðfesta þátttöku hér fyrir neðan sem fyrst.
 

kveðja

 Freyr og Viktor .


Liðskipan og mæting á laugardag

Ágæta Haukafólk við erum með 5 lið á mótinu og skráningu lokið þetta verður mikið fjör hér er mætingar-listinn.

Það er  búið að publisha mótið á veraldarvefnum. Hér er linkurinn á það:
Hægt er að fara á linkinn til að fylgjast með úrslitum og stöðunni í hverri deild.
 
Áherslan á mótinu er að foreldrar sitji á bekkjunum en standi ekki á línum vallanna.
 
Borga þátttökugjaldið 3000 kr strax til þjálfara við komu. 

Þeir sem eiga að spila í Ensku-deildinni Spilað frá 09:00 - 12:00 og eiga að mæta kl 08:40 eru:

Brynjar,Sindri,Grétar,Viktor,Patti,Darri,Jón D.

 

 Þeir sem eiga að spila í Sænsku-deildinni Spilað frá 09:15 - 12:20 og eiga að mæta kl 08:40 eru:

Marinó,Guðmundur,Ragnar Már,Anton V,Alexander K,Dennis,Kristján Ísak.

 

Þeir sem eiga að spila í Norsku-deildinni Spilað frá 09:00- 12:00 og eiga að mæta kl 08:30 eru:

Arnar,Benjamín,Unnar,Elmar Leví,Bjartur Ingi,Torfi,Grímur,Magnús.

Þeir sem eiga að spila í Hollensku-deildinni. Spilað frá 12:00-15:10 eiga að mæta kl 11:40

Mikael,Bjarni,Óskar,Birnir,Samúel,Agi Snær,Mummi,Jakob.

 

Þeir sem eiga að spila í Þýsku-deildinni Spilað frá 12:15 - 15:00 og eiga að mæta kl 11:50 eru:

Halldór,Kristof,Uni,Baldur,Elvar,Kristófer Á,Benni.

Mæta með Rauða-Hauka-búninginn ekkert mál að vera í stuttbuxum það er heitt í Reykjaneshöll verðum með aukabúninga ef einhverjum vantar.

Foreldrar munið eftir mótsgjaldi 3000kr sem greiðist strax til þjálfara við komu í Reykjaneshöll. 

 

Skemmtum okkur á laugardag

Freyr og Viktor

 

 


Vogaferð laugardaginn 8. februar

Haukar 6.flokkur fara í Vogana laugardaginn 8. februar nánari upplýsingar koma fljótlega.


Njarðvikurmót 25.januar

Næsta stóra verkefni hjá 6. flokk er hraðmót hjá Njarðvík sem haldið er laugardaginn 25.januar í Reykjaneshöll. Kostnaður er kr 3000. Allir sem æfa og eru skráðir mega taka þátt og þarf að skrá sig hér fyrir neðan í athugasemdir fyrir sunnudaginn 19 jan. svo við sjáum hvað við getum verið með mörg lið.

Bestu kveðjur.

kv þjálfarar


Jólafrí

Við æfum fimmtudaginn 19. desember og förum svo í jólafrí og byrjum aftur mánudaginn 6. januar.

Bestu jólakveðjur

Freyr,Viktor.


Mæting og liðskipan á mótið á laugardag

Ágæta Haukafólk við erum með 6 lið á mótinu og þetta verður mikið fjör allir að spila  mikið, hér er mætingar-listinn.

 
 
 
Þeir sem eiga að spila  frá 08:30 - 11:00 og eiga að mæta kl 08:10 eru:

Haukar 1:Brynjar,Viktor Óli,Sindri,Grétar,Patti,Uni.

Haukar 2:Benni,Elvar,Jón Diego,Mikael Máni,Darri,Baldur.

 

 

 

Þeir sem eiga að spila frá 11:00 - 13:30 og eiga að mæta kl 10:40 eru:

Haukar 3:Anton,Marinó,Kristófer Árni,Guðmundur,Kristján Ísak,Kristof.

Haukar 4:Bjarni,Jakob Daði,Samúel,Aji Snær,Mummi,Óskar.

Þeir sem eiga að spila frá 13:30 - 16:00 og eiga að mæta kl 13:10 eru:

Haukar 5:Bjartur Ingi,Arnar,Benjamín,Birnir,Heiðar,Unnar 

 

Haukar 6:Dennis,Torfi,Hilmar Erik,Grímur,Magnús Logi,Magnas.

 

Mæta með Rauða-Hauka-búninginn ekkert mál að vera í stuttbuxum það er heitt í Egilshöll. Verðum með aukabúninga ef einhverjum vantar.

Áríðandi

Að foreldrar munið eftir mótsgjaldi 3000kr sem greiðist strax til þjálfara við komu í Egilshöll. 

 

Skemmtum okkur á laugardag

Freyr og Viktor

Ef eitthvað er óljóst hafið samband við Frey þjálfara 897-8384 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband